Sumarnámskeið HFA 2026 Fjallahjólaæfingar fyrir krakka
- 19 minutes ago
- 1 min read
Hjólreiðafélag Akureyrar býður upp á skemmtilegt fjallahjólanámskeið fyrir börn og ungmenni á aldrinum 8-16 ára.
Gunnar Jarl og Jonni verða aðalþjálfar og fara yfir ýmis atriði til að bæta færni og tækni á hjólinu 🚵♀️
📅 Námskeiðið hefst 8. júní og stendur til 2. júlí. Æfingar verða á
mánudögum 17:00 - 18:30
fimmtudögum 17:00 - 19:00
Leikvöllurinn okkar: 📍 Kjarnaskógur, Fálkafell og Naustaborgir 🌲
Þáttökugjald: 17.900 kr Skráning á > abler <
Gott að hafa í huga:
Hjálmur er skylda á öllum æfingum.
Þátttakendur mæta með eigið fjallahjól. (ath HFA á þó örfá hjól til láns)
Foreldrum velkomið að fylgja með
öll velkomin! byrjendur sem og lengra komnir.
Til stendur að halda svo annað námskeið seinna í sumar 💪




Comments