Aðalfundur HFA 2025
- stjorn5
- Oct 3
- 1 min read
Aðalfundur Hjólreiðafélags Akureyrar 2025 verður haldinn fimmtudaginn 23. október klukkan 20:00. Fundurinn verður í norðursalnum á Strikinu, Skipagötu 14, 600 Akureyri. Farið verður yfir tímabilið, skýrslu formanns og ársreikning félagsins.
Dagskrá fundarins er annars samkvæmt lögum félagsins eftirfarandi:
A. Kosinn fundarstjóri og fundarritari.
B. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
C. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar.
D. Lagabreytingar, ef tillögur liggja fyrir sbr. 10. grein.
E. Ákvörðun um árgjald.
F. Staðfesting siðareglna.
G. Kosning í stjórn félagsins.
H. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
I. Önnur mál.
Óskað er eftir framboðum í stjórn og nefndir fyrir komandi tímabil, bæði í aðalstjórn og varamenn. Óski einhver eftir að bera upp erindi á fundinum er viðkomandi beðinn um að hafa samband við stjórn (stjorn@hfa.is), formann (formadur@hfa.is) eða fundarstjóra, sem tilkynntur verður þegar nær dregur




Comments