top of page

Ferðastyrkur HFA

  • stjorn5
  • Sep 20
  • 1 min read

HFA ætlar að veita styrki til keppenda fyrir keppnistímabilið 2025. 

I.Í fyrsta lagi er um að ræða styrk sem sóttur er til ÍSÍ vegna keppnisferða innanlands. Mót sem teljast styrkhæf eru bikarmót og Íslandsmót í öllum keppnisgreinum innan HRÍ. 

Umsækjendur sem teljast styrkhæfir eru:

  • Keppendur yngri en 18 ára sem hafa tekið þátt í að minnsta kosti einu móti á tímabilinu. 

  • Keppendur 18 ára og eldri sem hafa verið skráðir í A eða B flokk og hafa tekið þátt í að minnsta kosti þremur mótum á tímabilinu. 

Umsóknir skulu sendar á netfangið stjorn@hfa.is þar sem tekið er fram nafn, kennitala, reikningsnúmer og á hvaða mótum viðkomandi tók þátt í á keppnistímabilinu. Upphæð styrks miðast við fjölda umsækjenda og þátttöku á mótum.

Umsóknarfrestur er til 5. október 2025. 

II. 

Í öðru lagi geta félagsmenn sem taka þátt í mótum erlendis á hverju tímabili sótt um styrk til félagsins, sem stjórn tekur til ákvörðunar miðað við fjárhagsstöðu og stöðu mála hvað varðar mót og keppendur hverju sinni. 

Umsóknir skulu sendar á netfangið stjorn@hfa.is þar sem tekið er fram nafn, kennitala og á hvaða mótum viðkomandi tók þátt í á keppnistímabilinu. Leggja þarf fram kvittanir fyrir ferðakostnaði og greinargerð um þau mót sem tekið er þátt í með umsókn. Einnig skal taka fram ef keppandi nýtur annarra styrkja vegna umrædds móts eða móta og sýna þannig fram á raunkostnað keppanda vegna þátttökunnar. 

Umsóknarfrestur er til 5. október 2025. 


Akureyri, 20. september 2025

Stjórn Hjólreiðafélags Akureyrar

 
 
 

Comments


© 2024 Hjólreiðafélag Akureyrar

bottom of page