Sterkar konur úr Hjólreiðafélagi Akureyrar á Smáþjóðaleikunum í Andorra
- stjorn5
- 12 minutes ago
- 1 min read
Þrjár konur úr Hjólreiðafélagi Akureyrar kepptu fyrir Íslands hönd á Smáþjóðaleikunum í Andorra í síðustu viku og stóðu sig vel í erfiðri alþjóðlegri keppni.

Hafdís Sigurðardóttir náði glæsilegum árangri í tímatökukeppninni sem fram fór 27. maí og hafnaði þar í 3. sæti – og varð þar með aðeins önnur íslenska konan sem kemst á pall í hjólreiðum á Smáþjóðaleikum. Silja Jóhannesdóttir lenti í 11. sæti í sömu grein.
Í götuhjólakeppni kvenna 31. maí voru þær þrjár allar meðal þátttakenda. Sóley Kjerúlf Svansdóttir hafnaði í 26. sæti, Silja Jóhannesdóttir í 22. sæti og Hafdís Sigurðardóttir í 9. sæti. Keppnin var erfið og tæknileg, með erfiðu klifri í lokahringnum. Silja féll þar í síðasta hring en kláraði engu að síður keppnina – sem sýnir þrautseigju og baráttuandann sem einkennir þessar öflugu konur.
Það er sannarlega ótrúlegur árangur fyrir Hjólreiðafélag Akureyrar að eiga þrjá keppendur í landsliðinu á svona stóru móti. Þær Hafdís, Silja og Sóley sýndu að hjólreiðafólk af Eyjafjarðarsvæðinu á fullt erindi í alþjóðlega keppni – og framtíðin er björt.
Comments