top of page

Aðalfundur Hjólreiðafélags Akureyrar 

Aðalfundur Hjólreiðafélags Akureyrar 2023 verður haldinn mánudaginn 6. nóvember klukkan 20:00. 

Fundurinn verður í teríunni í Íþróttahöllinni, Skólastíg, 600 Akureyri 

Dagskrá fundarins er samkvæmt lögum félagsins eftirfarandi: 

A. Kosinn fundarstjóri og fundarritari. 

B. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári. 

C. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar. 

D. Lagabreytingar, ef tillögur liggja fyrir sbr. 10. grein. 

E. Ákvörðun um árgjald. 

F. Staðfesting siðareglna. 

G. Kosning í stjórn félagsins. 

H. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga. 

I. Önnur mál. 

Óskað er eftir framboðum í stjórn fyrir komandi tímabil, bæði í aðalstjórn og varamenn. 

Óski einhver eftir að bera upp erindi á fundinum er viðkomandi beðinn um að hafa samband við stjórn (stjorn@hfa.is), formann (formadur@hfa.is / 8926217) eða fundarstjóra, sem tilkynntur verður þegar nær dregur. 

Search
bottom of page