Lagabreytingatillögur fyrir aðalfund HFA 2026
Stjórn Hjólreiðafélags Akureyrar leggur eftirfarandi lagabreytingatillögur fyrir aðalfund félagsins þann 21. október.
Tillögurnar skiptast í tvo hluta. Hluti A inniheldur breytingar sem nauðsynlegar eru til að lög HFA samræmist lögum ÍSÍ 2025 (einkum 5.2, 5.7, 7.1 og 8.1 gr.) og reglugerð ÍSÍ um félaga-, iðkenda- og keppendatal. Hluti B inniheldur breytingar að ósk félagsins. Hlutarnir eru aðgreindir svo hægt sé að kjósa um þá sérstaklega.
HRÍ gerir ekki sjálfstæðar kröfur um lög aðildarfélaga; þær kröfur fara í gegnum lög ÍSÍ, sbr. 7.1.a í lögum ÍSÍ þar sem segir að lög ÍSÍ gangi framar ef misræmi er til staðar.
A. Skyldubreytingar – samræmi við lög ÍSÍ 2025
1. grein – Heiti og íþróttahérað (endurskrifuð)
Félagið heitir Hjólreiðafélag Akureyrar, skammstafað HFA. Heimili félagsins og varnarþing er á Akureyri. Félagið heyrir undir íþróttahéraðið ÍBA og hlítir lögum og reglum þess, sem og lögum og reglum ÍSÍ.
2. grein – Tilgangur (endurskrifuð)
Tilgangur Hjólreiðafélags Akureyrar er að efla íþróttastarfsemi á Akureyri og nágrenni með aðaláherslu á hjólreiðar. Markmið félagsins eru:
a) standa fyrir æfingum og námskeiðum í hjólreiðum fyrir börn, ungmenni og fullorðna,
b) halda hjólreiðamót og aðra viðburði og styðja félagsmenn til þátttöku í keppni innanlands og utan,
c) stuðla að öruggum hjólreiðum og bættri aðstöðu til hjólreiða í samstarfi við sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila,
d) efla hjólreiðar sem almenningsíþrótt og stuðla að góðum félagsanda. Rekstur HFA er einskorðaður við hagsmuni félagsins og þeirrar starfsemi sem tengist iðkun íþrótta og er ekki í hagnaðarskyni.
3. grein – Félagsaðild (endurskrifuð)
Ástæða: Gildandi grein veitir foreldrum atkvæðisrétt barna sinna, sem brýtur gegn 5.2.g (allir félagsmenn hafa sama rétt). Jafnframt vantar skráningarreglu (5.2.f) og kjörgengisákvæði (5.7.e).
Félagsaðild er ávallt frjáls öllum þeim sem gangast undir lög og reglur félagsins. Félagsmaður er skuldbundinn til að fylgja lögum og reglum félagsins og starfa í samræmi við tilgang þess. Hver sá sem greiðir félagsgjald til félagsins er félagi í Hjólreiðafélagi Akureyrar. Upphæð félagsgjalda skal lögð fyrir aðalfund af stjórn til samþykktar og skulu þau renna í aðalsjóð félagsins. Allir félagsmenn hafa sama rétt, þ.m.t. atkvæðisrétt um málefni félagsins. Atkvæðisréttur á aðalfundi og félagsfundum miðast við 16 ára aldur. Kjörgengi til stjórnar, varastjórnar og nefnda miðast við lögræðisaldur (18 ár). Félagatal skal varðveitt af stjórn. Stjórn skal setja sér reglur um meðferð félagatals. Félagatal skal ekki látið af hendi til þriðja aðila.
Breytingar frá gildandi grein: Felld brott setning um að foreldrar fari með atkvæðisrétt barna (5.2.g). Bætt við skráningarreglu (5.2.f) og kjörgengisákvæði (5.7.e). Tvítekið „og“ lagfært. Ákvæði um félagsgjaldsundanþágu er í hluta B og bætist við þessa grein.
5. grein – Aðalfundur (viðbót)
Ástæða: 5.7.d í lögum ÍSÍ krefst ákvæðis um að dagskrá aðalfundar og framkomnar tillögur séu félagsmönnum aðgengilegar tímanlega fyrir aðalfund.
Eftirfarandi ákvæði í 3. ml. 5. gr. fellur brott:
auk þess að senda fundarboð í tölvupósti á alla skráða félagsmenn.
Í stað þess kemur:
auk þess að senda fundarboð í gegnum félagaskrá.
Eftirfarandi málsgrein bætist við greinina:
Dagskrá aðalfundar og allar framkomnar tillögur skulu gerðar félagsmönnum aðgengilegar, t.d. á heimasíðu félagsins, eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.
Eftirfarandi ákvæði 1. ml. 3. mgr. breytist svo:
Á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum mála nema þegar um lagabreytingar er að ræða en þá þarf ⅔ hluta greiddra atkvæða til samþykktar. Kosning skal fara fram með handauppréttingu eða skriflega samkvæmt ákvörðun fundarstjóra. Heimilt er að hafa kosningu með rafrænum hætti.
Eftirfarandi málsgrein bætist við sem 4. mgr.:
Boða má til aukaaðalfundar ef stjórn er óstarfhæf eða fyrir liggja eitt eða fleiri skýrt tilgreind mál sem taka þarf fyrir hjá æðsta valdi félagsins. Allir boðunar- og tilkynningafrestir til aukaaðalfundar mega vera helmingi styttri en til reglulegs aðalfundar. Heimilt er að kjósa bráðabirgðastjórn hafi aðalstjórn sagt af sér eða hætt störfum, eða orðið óstarfhæf.
6. grein – Reikningsár og reikningsskil (brottfelling)
Ástæða: 2. mgr. ákvæðisins á ekki lengur við.
Eftirfarandi málsgrein fellur brott:
Reikningsárið skal vera 1. september 2022 til 30. september 2023. Sérákvæði þetta um reikningsárið 2023 fellur úr gildi á aðalfundi að hausti árið 2023.
7. grein – Félagaskrá (endurskrifuð)
Ástæða: 5.2.f í lögum ÍSÍ og reglugerð ÍSÍ um félaga-, iðkenda- og keppendatal gera kröfu um þrjár aðskildar skrár og skil á starfsskýrslu fyrir 15. apríl (8.1 gr. laga ÍSÍ).
Stjórnin skal halda þrjár aðskildar skrár í samræmi við reglugerð ÍSÍ: félagatal, iðkendatal og keppendatal, og endurskoða þær á hverju starfsári. Starfsskýrslu félagsins, ásamt þessum skrám og ársreikningi, skal skila til skrifstofu ÍSÍ fyrir 15. apríl ár hvert. Skráning félagsaðildar tekur gildi þegar viðkomandi hefur verið skráður í félagatal félagsins, og úrsögn tekur gildi þegar afskráning hefur farið fram. Það er á ábyrgð félagsmanns að ganga úr skugga um að skráning eða afskráning hafi átt sér stað. Úrsögn úr félaginu skal tilkynnt skriflega til stjórnar. Þeir sem ekki greiða árgjald félagsins verða teknir af félagaskrá.
10. grein – Lagabreytingar (viðbót og leiðrétting)
Ástæða: 5.7.i í lögum ÍSÍ krefst ákvæðis um að lög félagsins og breytingar á þeim þarfnist staðfestingar íþróttahéraðs (ÍBA) og framkvæmdastjórnar ÍSÍ. Þetta er brýnasta breytingin, því án hennar fá lög félagsins ekki formlega staðfestingu, sbr. 5.2.d. Jafnframt er lagfærð villa í fresti („viku 14 dögum“).
Lögum þessum má ekki breyta nema á aðalfundi félagsins, og þarf til þess samþykki ⅔ hluta atkvæðisbærra fundarmanna. Tillögur til lagabreytinga skulu tilkynntar með aðalfundarboði og birtar á heimasíðu félagsins eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Lög félagsins og allar breytingar á þeim skulu staðfestar af stjórn Íþróttabandalags Akureyrar og framkvæmdastjórn ÍSÍ. Lagabreytingar öðlast ekki gildi fyrr en sú staðfesting liggur fyrir.
11. grein – Sakavottorð (ný málsgrein)
Ástæða: 7.1.f og 7.1.g í lögum ÍSÍ skylda félög til að afla sakavottorðs og banna ráðningu þeirra sem hlotið hafa tiltekna refsidóma til starfa með börnum og ungmennum undir 18 ára aldri.
Félagið skal afla sakavottorðs frá öllum sem ráðnir eru eða starfa á vegum félagsins, þ.m.t. sjálfboðaliðum, sem sinna börnum og ungmennum undir 18 ára aldri, í samræmi við 7. grein laga ÍSÍ. Óheimilt er að ráða til slíkra starfa einstaklinga sem hlotið hafa refsidóm vegna þeirra brota sem tilgreind eru í 7.1.f í lögum ÍSÍ.
13. grein – Gildistaka (endurskrifuð)
Lög þessi og síðari breytingar á þeim öðlast gildi þegar stjórn félagsins og framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur staðfest þau.
B. Breytingar að ósk félagsins
3. grein – Félagar (viðbót: undanþága frá félagsgjaldi)
Ástæða: Reglugerð ÍSÍ um félaga-, iðkenda- og keppendatal heimilar að stjórn samþykki skráningu félaga sem eru undanþegnir félagsgjaldi af sérstökum ástæðum. Með ákvæðinu er þeim sem leggja félaginu lið með sjálfboðastarfi og þjálfun sýnd viðurkenning. Jafn réttur allra félagsmanna, sbr. 5.2.g í lögum ÍSÍ, er tryggður.
Eftirfarandi bætist við 3. grein:
Auk þeirra sem greiða félagsgjald eru sjálfkrafa félagsmenn, án greiðslu félagsgjalds: a) sitjandi stjórnarmenn og varamenn, b) skoðunarmenn reikninga, c) aðalþjálfarar á vegum félagsins, þ.e. þeir þjálfarar sem stjórn hefur formlega skipað sem aðalþjálfara einstakra iðkendahópa fyrir yfirstandandi starfsár og bera meginábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjálfunar. Aðstoðarþjálfarar og aðrir sem leggja félaginu lið án formlegrar aðalþjálfarastöðu falla ekki undir undanþáguna. Félagsaðild skv. c-lið gildir á meðan viðkomandi gegnir starfinu. Hætti hann störfum, hvort sem er að eigin ósk eða ákvörðun stjórnar, fellur félagsaðildin niður um leið nema viðkomandi greiði félagsgjald. Allir félagsmenn skv. þessari grein hafa sömu réttindi óháð því hvort félagsgjald hefur verið greitt.




Comments