top of page

Ferðastyrkur HFA

HFA ætlar að veita styrki til keppenda sinna fyrir keppnistímabilið 2022.


I. Í fyrsta lagi er um að ræða styrk sem sóttur er til ÍSÍ vegna keppnisferða innanlands. Mót sem teljast styrkhæf eru bikarmót og Íslandsmót í öllum keppnisgreinum innan HRÍ.

Umsækjendur sem teljast styrkhæfir eru:

  • Keppendur yngri en 18 ára sem hafa tekið þátt í að minnsta kosti einu móti á tímabilinu.

  • Keppendur 18 ára og eldri sem hafa verið skráðir í A eða B flokk og hafa tekið þátt í að minnsta kosti þremur mótum á tímabilinu.

Umsóknir skulu sendar á netfangið stjorn@hfa.is þar sem tekið er fram nafn, kennitala og á hvaða mótum viðkomandi tók þátt í á keppnistímabilinu.

Upphæð styrks miðast við fjölda umsækjenda og þátttöku á mótum.


Umsóknarfrestur er til 15. september 2022.


II.

Í öðru lagi geta félagsmenn sem taka þátt í mótum erlendis á hverju tímabili sótt um styrk til félagsins, sem stjórn tekur til ákvörðunar miðað við fjárhagsstöðu og stöðu mála hvað varðar mót og keppendur hverju sinni.

Umsóknir skulu sendar á netfangið stjorn@hfa.is þar sem tekið er fram nafn, kennitala og á hvaða mótum viðkomandi tók þátt í á keppnistímabilinu. Leggja þarf fram kvittanir fyrir ferðakostnaði og greinargerð um þau mót sem tekið er þátt í með umsókn. Einnig skal taka fram ef keppandi nýtur annarra styrkja vegna umrædds móts eða móta og sýna þannig fram á raunkostnað keppanda vegna þátttökunnar.


Umsóknarfrestur er til 15. september 2022.


Akureyri, 9. júní 2022

Stjórn Hjólreiðafélags Akureyrar



Comments


bottom of page