top of page
Search

Ferðastyrkir HFA

  • stjorn5
  • Oct 2, 2023
  • 1 min read

Ferðastyrkur HFA

HFA ætlar að veita styrki til keppenda fyrir keppnistímabilið 2023.

I. Í fyrsta lagi er um að ræða styrk sem sóttur er til ÍSÍ vegna keppnisferða innanlands. Mót sem teljast styrkhæf eru bikarmót og Íslandsmót í öllum keppnisgreinum innan HRÍ.

Umsækjendur sem teljast styrkhæfir eru:

  • Keppendur yngri en 18 ára sem hafa tekið þátt í að minnsta kosti einu móti á tímabilinu.

  • Keppendur 18 ára og eldri sem hafa verið skráðir í A eða B flokk og hafa tekið þátt í að minnsta kosti þremur mótum á tímabilinu.

Umsóknir skulu sendar á netfangið stjorn@hfa.is þar sem tekið er fram nafn, kennitala, reikningsnúmer og á hvaða mótum viðkomandi tók þátt í á keppnistímabilinu. Upphæð styrks miðast við fjölda umsækjenda og þátttöku á mótum.

Umsóknarfrestur er til 10. október 2023.

II.

Í öðru lagi geta félagsmenn sem taka þátt í stórmóti(um) erlendis á hverju tímabili sótt um styrk til félagsins, sem stjórn greiðir miðað við fjárhagsstöðu og stöðu mála hvað varðar mót og keppendur hverju sinni.

Umsóknir skulu sendar á netfangið stjorn@hfa.is þar sem tekið er fram nafn, kennitala og á hvaða mótum viðkomandi tók þátt í á keppnistímabilinu. Leggja þarf fram greinargerð um þau mót sem tekið er þátt í með umsókn. Einnig skal taka fram ef keppandi nýtur annarra styrkja vegna umrædds móts eða móta og sýna þannig fram á raunkostnað keppanda vegna þátttökunnar.

Umsóknarfrestur er til 10. október 2023.

Styrkir verða greiddir út ekki seinna en 25. október 2023.


Akureyri, 2. október 2023

Stjórn Hjólreiðafélags Akureyrar




 
 
 

Comments


© 2024 Hjólreiðafélag Akureyrar

bottom of page