top of page

Aðalfundur HFA 2024

Aðalfundur Hjólreiðafélags Akureyrar 2024 verður haldinn þriðjudaginn 19. nóvember klukkan 20:00. Fundurinn verður í norðursalnum á Strikinu, Skipagötu 14, 600 Akureyri


Dagskrá fundarins er samkvæmt lögum félagsins eftirfarandi:


A. Kosinn fundarstjóri og fundarritari.

B. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.

C. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar.

D. Lagabreytingar, ef tillögur liggja fyrir sbr. 10. grein.

E. Ákvörðun um árgjald.

F. Staðfesting siðareglna.

G. Kosning í stjórn félagsins.

H. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.

I. Önnur mál.


Óskað er eftir framboðum í stjórn fyrir komandi tímabil, bæði í aðalstjórn og varamenn. Óski einhver eftir að bera upp erindi á fundinum er viðkomandi beðinn um að hafa samband við stjórn (stjorn@hfa.is), formann (formadur@hfa.is / 8467505) eða fundarstjóra, sem tilkynntur verður þegar nær dregur




Comments


bottom of page