top of page

Götuhjólaæfingar sumarið 2024

Götuhjólaæfingar HFA sumarið 2024 verða á þriðjudögum og fimmtudögum, kl. 18:00 frá 21. maí til 11. júlí.

Æfingarnar henta öllum sem vilja æfa sig á götuhjóli, ná betri tökum á því og hjóla í hópi með öðrum.

 

Getustig skiptir ekki máli, æfingarnar henta bæði byrjendum og lengra komnum.

 

Upphafsstaðir æfinga verða misjafnir og auglýstir í Sportabler, þar sem öll helstu samskipti fara fram.

 

Einnig verður búinn til lokaður hópur á Facebook fyrir þau sem eru skráð á æfingar.

 

Þjálfarar: Hafdís Sigurðardóttir, Rögnvaldur Már Helgason, Silja Jóhannsdóttir, Sóley Kjerúlf og Hafsteinn Lúðvíksson.


 

436562338_954313866694964_1424042162431420691_n.jpg
bottom of page