Sumarið er komið og sífellt fleiri eru komnir á fjallahjól. Hjólreiðafélag Akureyrar býður í sumar upp á námskeið fyrir þá sem vilja bæta sig á hjólinu, vinna í tækni, læra betur hvernig á að beita sér á hjólinu, nýta gíra og bremsur, velja línur og margt fleira. Jónas Stefánsson, Jonni, einn besti fjallahjólamaður landsins sér um námskeiðið.
Tvö námskeið eru í boði, 1.-3. júní og 8.-10.júní. Aðeins 10 pláss eru í boði á hverju námskeiði.
Hvert námskeið inniheldur þrjú kvöld, tvær klukkustundir í senn. Kennt er í Kjarnaskógi.
// Gróf Dagskrá //
Þriðjudagur 18:30
-
Uppsetning í hjóli
-
Búnaður
-
Líkamstaða / þyngdardreifing
-
Að bremsa
-
Kyrrstaðan
Miðvikudagur 18:30
-
Línuval / Að horfa áfram
-
Gíraval / Hvernig á að skipta
-
Upp brekkur
-
Niður brekkur
-
Grófir kaflar
Fimmtudagur 18:30
-
Að lyfta framdekki / manual / prjón
-
Að hoppa / bunny hop
-
Að pumpa / halda hraða
-
Stökkva fram af / drop
-
Stökk
Námskeiðið er miðað við tækni á fulldempuðu fjallahjóli en einnig er velkomið að mæta á “hardtail” fjallahjóli sem er eingöngu með framdempara.
Hjálmaskylda er á námskeiðinu og mælt er með bak- og hnéhlífum.
Verð fyrir námskeiðið er 15.000.
Skráning fer fram á í gegnum félagakerfið Nóra, á slóðinni iba.felog.is
Þar þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum. Þar skal ýta á hnappinn "Skráning í boði"
Þá birtist listi yfir öll þau námskeið sem í boði eru. Þar á lista ætti að vera Hjólreiðafélag Akureyrar, Fjallahjólanámskeið með Jonna, eins og sjá má á mynd.
Hægt er að greiða með kreditkorti eða fá sendann greiðsluseðil í heimabanka.


