
Um viðburðinn
Velkomin í Fimm Skóga Gravel
Fimm Skóga Gravel er alvöru malarhjóla viðburður með því besta sem Norðurland hefur uppá að bjóða.
Lagt er af stað úr Kjarnaskóg og hjólað yfir Vaðlaheiði í Fnjóskadal í Skuggabjargaskóg, Vaglaskóg, Lundskóg, Þórðarstaðaskóg og til baka.
Allir keppendur fá miða í skógaböðin.
Five Forests. One Ride.
Ride the forests of the North.
Fimm Skógar - Ein upplifun


Skráning
Fimm skóga gravel er viðburður þar sem boðið er upp á bæði keppnisflokka og skemmtiflokka og áherslan er á gleði og gaman.
Skráning fer fram á netskráning, úrslit má finna á tímataka.net
Skráningargjald til miðnættis 31.07.26:
Mölin: 11900 kr
Klöppin: 14900 kr
Hamarinn: 18900 kr
Frá 1. ágúst hækkar skráningargjald í:
Mölin: 13900 kr
Klöppin: 16900 kr
Hamarinn: 20900 kr
Skráningu lýkur á miðnætti 6. ágúst.
Innifalið í miða er þátttökugjald, miði í skógarböðin, matur og drykkir á drykkjarstöðvum, hamborgari og drykkir í marki. Þátttökuverðlaun og útdráttarverðlaun eru í boði fyrir alla, þá verða veitt verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í aldursflokkum í Hamrinum og Klöppinni.
Leiðar og flokkar

Ingvar Ómarsson - Sigurvegari í Hamrinum 2025
"Ótrúlega fjölbreytt landslag og leið sem býður upp á allt sem maður hefur gaman af í malarhjólreiðum. Uppáhalds er að bæði hjóla upp á topp á heiði til að sjá útsýnið, og fljúga í gegn um skóglendi stuttu seinna."
Hafdís Sigurðardóttir - Sigurvegari í Hamrinum 2025
"Einstaklega skemmtileg leið sem býður upp allt sem malarhjòlreiðar þurfa að hafa. Vaðlaheiði er klárlega minn uppáhaldspartur af leiðinni. Útsýnið þar er ótrúlega fallegt en það sem ég elska við heiðina er að vera með púlsinn í hæstu hæðum."
Hanna Rún -
Keppandi í Mölinni 2025
"Tók þátt í Mölinni í fyrra, frábær leið og hentaði mér vel þar sem þetta var mín fyrsta hjólakeppni. Klifrið upp Vaðlaheiðina var temmilega krefjandi og niðurferðin ótrúlega skemmtileg, fullkomin blanda af áskorun og hjólagleði."

Dagskrá
07.08
Afhending gagna
Útisport Glerártorgi
kl. 15:30-18:00
08.08
Afhending gagna
Kjarnaskógur
kl. 8:00 - 11:30
08.08
09:00 - Ræsing í Hamrinum
10:30 - Ræsing í Klöppinni
10:31 - Ræsing í skemmtiflokk
12:00 - Ræsing í rafmölinni
12:05 - Ræsing í Mölinni
08.08
Verðlaunaafhending
Kjarnaskógur
kl. 15:30

Drykkjarstöðvar
Drykkjarstöðvar eru 3, en farið er tvisvar í gegnum eina þeirra.
Á drykkjarstöðvunum verður boðið upp á kolvetnablöndu, gos, vatn, ávexti, súkkulaði og auðvitað haribo.
Drykkjarstöð 1 er staðsett við snúningspunkt efst á Vaðlaheiðinni á kílómeter 19. Allir þátttakendur fara í gegnum þessa drykkjarstöð. Farið er aftur gegnum drykkjastöð 1 í Hamrinum á kílómeter 109 og Klöppinni á kílómeter 63.
Drykkjarstöð 2 er staðsett við Skuggabjargarskóg á kílómeter 50. Eingöngu þátttakendur í Hamrinum fara á þessa drykkjarstöð.
Drykkjarstöð 3 er staðsett við brú yfir Fnjóská við Illugastaði á kílómeter 42 í klöppinni eða kílómeter 88 í Hamrinum. Þátttakendur í Hamrinum og Klöppinni fara í gegnum þessa drykkjarstöð.
Bag drop eru möguleg frá marki uppí fyrstu drykkjastöð en hafa þarf samand við mótstjórn til að óska eftir þessari þjónustu.
Aðrar upplýsingar

1
Öryggisatriði
Hjálmaskylda er í öllum leiðum.
Ekki er krafist annars hlífðarbúnaðs.
Skylda er að vera með síma á sér.
Mælt er með því að vera með leiðina vistaða í úri, hjólatölvu eða leiðsögutæki.
2
Slys
Keppendur eru á eigin ábyrgð í braut.
Það er ekki sópari á eftir síðasta keppanda.
Ef keppandi þarf að hætta keppni af einhverjum ástæðum eða ef það verður slys í braut skal hafa samband við mótstjóra eða 112.
3
Viðgerðarbúnaður
Utanaðkomandi aðstoð er ekki leyfð í braut. Þátttakendur mega aðstoða hvorn annan.
Á drykkjarstöðvum verður pumpa en ekki annar viðgerðarbúnaður. Þátttakendur skulu sjálfir vera með eigin búnað.

Súlur Vertical Þríleikurinn
Súlur Vertical Þríleikurinn sameinar það besta úr íslenskri útivist: skíðagöngu, krefjandi fjallahlaup og malarhjólreiðar með Fimm Skóga Gravel, samstarf Súlur Vertical og HFA.
Taktu áskoruninni og kláraðu þríleikinn!


Þessi viðburður er í styrktur af

.jpeg)

.jpeg)
_edited.png)







